úff..
Tengdó var að finna allskonar pappíra hjá sér um daginn úr gögnum frá pabba sínum. Þar á meðal voru hellings helling af mörkum (þýskum) sem voru öll með fáránlegum upphæðum sbr 500 milljarðar!!! og allskonar svoleiðis… ekkert smá gaman að fletta í gegnum þetta (enda partur af sögunni). Svo voru þau mæðgin að sortera seðlana um daginn og ef þessi mynd væri bara með “venjulegum” “gildum” peningaseðlum þá held ég að við værum í góðum málum *hahahaha*