akkúrat þegar ég drullast til þess að taka fram dúnúlpuna mína og er tilbúin í rokið og kuldann sem er búinn að herja á landann síðustu daga þá tekur veðurguðinn sig bara til og hættir þessu veseni.. eða minnkar það amk!
Þannig að ég er ss mætt í minni þykku dúnúlpu, með mína flíshúfu, minn þykka góða trefil og mína flísvettlinga og það er bara ekkert tilefni til þess að vera svona dúðaður… alltaf sami húmorinn í þessum veðurguðum!