Við ákváðum snemma í sumar að bíða með að fara á leikrit sumarsins hjá Leikhópnum Lottu þar til Ingibjörg frænka kæmi til landsins 🙂
Í dag rann dagurinn loksins upp og fórum við stelpurnar að hitta dönsku fjölskylduna okkar ásamt Evu og strákana í Norðlingaholtinu 🙂 Oliver var í “gistipartýi” hjá Sölva og kom því ekki með okkur.
Við skemmtum okkur konunglega þrátt fyrir þessa dropa sem ákváðu að láta sjá sig í miðri sýningu!