Pabbi fagnaði afmæli í dag – húrra fyrir því 😀
Á leiðinni til þeirra stoppuðum við Oliver í blómabúð og græjuðum 1 stk blómvönd fyrir afmælisbarnið. Eða Oliver sá um það.
Hann var alveg með það á tæru að hann vildi eitt svona blóm, eitt svona og svona og endaði í 5 mismunandi blómum ásamt nokkrum grænum stráum.
Efnilegur blómaskreytir þarna á ferð 🙂