út um allt! eða það má segja það 🙂
Ég ákvað sumsé um áramótin að vinna eitthvað á lopahrúgunni minni … fyllti 2 frekar stóra plastkassa, annan með plötulopa og nokkrum Spuna dokkum hinn með léttlopa og nokkrum einbandsdokkum. Planið er að nýta þetta eins og ég get í vettlinga og annað smálegt, datt reyndar í hug að skella í nýjar ullarbuxur á Sigurborgu úr einhverju af léttlopaafgöngum en ég á eftir að skoða það betur, enn sem komið er er ég bara í plötulopanum & spunanum eða ég hef verið að nota spuna í stroff fyrir þæfða vettlinga þar sem mér finnst stroffið ekki nógu skemmtilegt úr plötulopa, mýkra og liprara úr spunanum. So far so good!
Reyndar eru 2 kláruð pör ekki úr plötulopa eða spuna nú í janúar 🙂
1 par þar sem ég nýtti upp smá af léttlopa ásamt hluta af Big Trend dokku og annað þar sem ég keypti lanett garn í flýti á leiðinni á fund niðrí SFR og hafði gleymt verkefninu mínu heima…
Vettlingamanían byrjaði með þessum:
Þeir heita hinu skemmtilega nafni Newfoundland mitts og eru eftir Gillian S. Hess, hér er verkefnið mitt á Ravelry.
Í þá notaði ég Big Trend (marglita) og hvítan léttlopa, náði þar að klára 2 litla hnykla en í heildina fór tæplega 50gr af léttlopa í par á mig –
Skemmtilegt prjón og ekki spurning, ég er til í að gera annað par.. sem er reyndar á dagskrá skv beiðni frá Ásu Júlíu, þarf bara að minnka þá aðeins 😉
Ekki skemmir að uppskriftin er frí!
Næsta par var upp úr vettlingabókinni hennar Kristínar Harðar, Vettlingar og fleira og nefnist uppskriftin “Þæfðir vettlingar fyrir 4-10 ára úr þreföldum plötulopa“. Þarna var ég að vinna upp smá afgang úr spunagallanum hennar Sigurborgar í stroffið og nær það því að halda sér teyjanlegu og fínu á meðan belgurinn og þumallinn þæfast og þéttast vel.
Ég nefndi þessa Grágull á Ravelry.
Næstu 2 pör eru samsuða hjá mér, úr barnavettlingunum hennar Kristínar eins og hér á undan og svo frá “world simplest mittens” frá Tin Can Knits, reyndar á það bara við um lykkjufjölda og lengd að þumli ca en það er eitt af því besta við uppskriftina frá Tin Can Knits að fá uppgefinn lykkjufjölda fyrir ýmsar garntegundir/þykktir og auðvitað prjónastærðir líka.
Næstaskref var að græja vettlinga á Ásuskottið mitt en hún elskar þæfðu vettlingana sem ég gerði á hana síðasta vetur en þessir ættu að vera aðeins stærri en eru eftir uppskriftinni hennar Kirstínar sem ég linkaði á hér að ofan, prjónaðir alveg úr plötulopa.
Þarna náði ég að klára nánast allan ljósbleika litinn *jeij* og líka þann dekkri.
þessa má finna hér á Ravelry eða undir nafninu “Rauðbleikir“.
Dökkrauðir með bleikri rönd voru næstir, fitjaði reyndar líka upp með 2þr ljósbleikum og 1þr dökk rauðum og prjónaði þá eftir uppskrift úr bókinni hennar Kristínar fyrir fullorðna, bætti röndinni bara við en þeir voru alveg einlitir þar. Uppskriftin heitir “Einfaldir vettlingar úr þreföldum plötulopa” og eru ekki ætlaðir til þæfingar en ég skellti þeim í vélina líka, passa ca á Oliver (10ára) eða aðeins eldri.
Fyrr í vetur byrjaði ég á vettlingum sem heita Luffe, skemmtilega öðruvísi vettlingar en þeir eru 2faldir með ótrúlega klæðilegum þumli.
Ég ákvað strax að græja þá úr 2þr af plötulopa og innri vettlingana úr Spuna þannig að það má segja að þetta sé líka nýting úr kassanum góða þó ég hafi misreiknað mig og endað með að þurfa að kaupa auka plötur af báðum litum 😉 Dreif mig í að klára þá núna á nýju ári og því fá þeir að fljóta hér með. Ég er hrikalega sátt við þessa og eins og ein vinkona mín sagði þegar hún sá mynd af þeim þá eru þetta ekta útivista vettlingar! amk eins og ég græjaði þá því ég skellti þeim með í vélina þannig að ytri vettlingurinn þæfðist aðeins. Það er alveg á tæru að ég mun græja fleiri svona vettlinga og þá fyrir krakkana, þarf bara aðeins að útfæra þá. Oliver er amk búin að panta par! veit samt ekki hversu mikið stashbursting það verður – kemur í ljós!
Eftir allt þetta grófa lopa prjón þá “varð” ég að fara í aðeins fínna prjón og þar sem ég var á leiðinni á trúnaðarmannafund hjá SFR en gleymdi að taka prjónatöskuna með um morguninn þá hoppaði ég inn í Rúmfó á leiðinni niðrá Grettisgötu og splæsti í Lanette garn, 3 liti og auka sett af prjónum nr3.5mm og hófst handa í byrjun fundar að prjóna minnstu stærðina af Luffe, 2-4 ára. Eiginlega eru þeir í þessari útgáfu meira 1-3 ára 😉 Sigurborg er samt búin að eigna sér þá.
Þá var komið að svörtum og gráum afgöngum…
Oliver fékk þessa og er hæst ánægður með þá 🙂
Fitja upp með svörtum Spuna og prjónað stroff og þá fært yfir á stærri prjóna og 3faldan plötulopa. Þeir eru samsuða af nokkrum uppskriftum og skrifaði ég niður hjá mér lykkjufjölda, umferðafjölda og þannig.
Var með svartan, dökk gráan, milligráan og ljósgráan – átti örlítið eftir af þeim ljós en meira af hinum þannig að ég skellti í annað par með svipaðri uppsetningu en bætti í litum í úrtökunni á belgnum, þeir komu ágætlega út þannig.
Þetta par flokkast sem “Austurborgarverkefni” sem ég mun blogga um síðar.
Það er bara 1 vettlingapar eftir sem er tilbúið ótrúlegt en satt… og með því er ég að klára alla þá hnykla sem ég átti til undna upp með 3 þráðum! *húrra* svo eru til þónokkrir hnyklar með 2 þráðum og slatti af “heilum plötum” eða allt að því heilum.
Þessir eru úr 1þr fagur gulum sem er undinn upp með 2þr af hvítum og á móti 3þr hvítir undnir saman. Finnst guli liturinn gefa svolítið skemmtilegan svip á annars einlita vettlingana 🙂 Stærðin er 8-10 ára og óbreytt uppskriftin af “þæfðir vettlingar fyrir 4-10ára úr þreföldum plötulopa” eftir Kristínu Harðardóttur.
Ég er svo með Luffe par á Oliver í vinnslu úr Navia duo, er búin að kaupa í Luffe á Ásu Júlíu og en ég keypti nýtt garn í bæði þessi pör – í Olivers reyndar í desember! en Ásu núna í janúar *hóst* – 3ja parið sem er komið af stað eru Barnehavevotter og verður það úr Spunahrúgunni 🙂 – já þetta eru ss 3 pör í vinnslu en bara 1 sem er komið almennilega af stað *haha* og munu því falla undir febrúarvettlingana geri ég ráð fyrir 🙂