ég skellti mér á konfekt námskeið á vegum SFR áðan.
Finnst þessi Gott að vita námskeið þeirra algjör snilld og er ég búin að nýta mér þónokkur þeirra í gegnum árin. Sumt er bara í formi fyrirlestra en annað eru námskeið líkt og það sem ég fór á áðan.
Þó svo að við Leifur höfum gert slatta af þessu í gegnum árin finnst mér gaman að fara á svona kvöldstund til þess að fá nýjar hugmyndir af fyllingum og líka bara hugmyndum hvernig hægt er að gera… það þarf ekki að steypa allt eða rúlla í kúlur 😉