Bróðursynir Leifs voru hjá okkur um helgina og var hún vel nýtt í ýmiskonar snjóleiki, fórum meðal annars út í Skíðabrekku að renna og svo eyddu krakkarnir hellings tíma í að útbúa þetta risasnjóhús sem rúmaði þau frændsystkinin 6 og nokkra nágrannakrakka að auki.
Bara gaman þegar snjórinn er svona fullkominn fyrir snjóboltagerð 🙂