Ég er búin að vera í svaklegu vettlingastuði í september, sem kemur sér svosem alveg ágætlega fyrir krakkana 🙂
Ég hef aðallega notast við uppskrift sem heitir “the worlds simplest mittens” sem er frí á netinu og get eiginlega ekki hætt að mæla með henni enda svo þægileg með tunguþumli sem er líka svo þægilegur fyrir krakkana.
Hef bæði prjónað eftir henni bara einlita vettlinga og blandað saman bæði garntegundum og litum sem er algjör snilld til þess að nýta garnafganga!
Hér eru nokkrar útgáfur sem ég hef gert í september: