Við skruppum til Danaveldis í nokkrar vikur nú í júlí – alveg dásamlegur tími sem við áttum þar með Ingu & Skúla tengdó, Sigurborgu, Tobba, Ingibjörgu & Kviku.
Vorum í viku í bústað í Brovst sem er rétt hjá Blockhus en hann var samt eiginlega notaður mest megnis sem bækistöð og svefnstaður þar sem við þvældumst á ýmsa staði þarna á Norður Jótlandi. Fórum m.a. á Skagen, “Slettestrand”, skoðuðum bunkera á Hanstholm ströndinni og svo fóru Leifur, Ása & Olli ásamt Ingu, Skúla og Sigurborgu og skoðuðu Bunkera safn frá seinni heimstyrjöldinni í Hanstholm, prufuðum fótboltagolf og skelltum okkur í Sirkus þar sem krakkarnir prufðu að fara á bak á Fíl (Ása & Olli) og Kameldýri (Sigurborg Ásta & Ingibjörg) sem var svakalega mikið sport 🙂
Eftir vikudvöl í bústaðnum var haldið “heim” til Odense þar sem við eyddum næstu 2 vikum. Inga og Skúli skelltu sér yfir til Köben á Sunnudeginum og skoðuðu sig um þar í nokkra daga áður en þau héldu heim á leið.
Við heimsóttum dýragarðinn í Odense og eyddum þar heilum degi í að kíkja á öll þessi flottu dýr sem þar búa.
Auðvitað var farið í heimsókn í Mecca Leifs og Olivers – Legoland! þar sem um það bil 95% tækjanna voru prufukeyrð. Olla og Ásu fannst æði að geta farið í alla rússíbanana og nýttu sér það óspart. Sigurborg Ásta var aðeins minna glöð með þessar ferðir systkinanna enda ekki búin að ná þeirri hæð sem lágmarkskröfur voru um. Henni fannst samt ekkert leiðinlegt að fara í þau tæki sem hún mátti fara í 🙂
Við eyddum 2 dögum í Legolandi líkt og 2014 en Sigurborg, Tobbi & Ingibjörg voru með okkur fyrri daginn.
Oliver & Ása Júlía tóku þátt í kubbakeppni þar sem þemað var “hús” og Oliver gerði sér lítið fyrir og var einn af sigurvegurum dagsins! Fékk hann að launum veglegan Star Wars legokassa.
Dagsferð til Þýskalands var líka á listanum sem hægt var að skella ✓ á 🙂
Stoppuðum fyrst við Dannewerk og röltum aðeins um þar eftir að hafa nært okkur aðeins í “mini” piknik.
Færðum okkur því næst yfir til Laboe sem er nálægt Kiel en þar var U-boat kafbátur sem heillaði Leif alveg upp úr skónum enda notaður af Hitler í WWII. Við vorum reyndar ekki lengi í Laboe enda var smá peningavesen í gangi, Evrur af skornum skammti hjá okkur og vesen að komast í hraðbanka og verslanir voru ekkert að hafa fyrir því að taka erlend kreditkort! Stuttu eftir að við stoppuðum í Laboe byrjuðu allir krakkarnir að tala um að komast á WC og einu WCin sem við fundum kostaði að komast á, þ.e. ef maður ætlaði sér að nota eitthvað annað en pissuskál! talandi um bleikan skatt!!!- náðum að skrapa saman í wc ferð fyrir okkur stelpurnar og drifum okkur því næst bara yfir til Kiel þar sem við röltum um miðbæinn og fundum okkur álitlegan veitingastað sem seldi Snitzel í ýmsum útfærslum.
Miðbær Odense var skoðaður í nokkrum skömmtum, fórum meðal annars og kíktum á síðdegissýningu hjá áhugamannaleikhópi sem sýnir örleikrit þar sem flestallar sögur H.C. Andersen koma fram og það á aðeins 30 mín gerir aðrir betur. Leikhópurinn er samansettur af börnum og fullorðnum á öllum aldri.
Skelltum okkur í siglingu á hjólabátum eftir ánni í miðbænum. Virkilega fallegt svæði og spennandi að mati krakkanna að fá að hjóla svona um 🙂
Auðvitað komu dagar þar sem ekkert annað komst að en að hangsa heima og njóta þess að vera til, elda góðan mat og já bara njóta!
Oliver fann sér nokkrar bækur til að lesa og spændi í sig 3 fyrstu Harry Potter bækurnar á örfáum dögum, er algjörlega kolfallinn!
Í Kerteminde var haldin uppskeruhátíð eða Kirsuberjahátíð á meðan við vorum úti og ákváðum við að kíkja þangað. Stoppið var stutt enda fór að rigna fljótlega eftir að við komum. MIKIÐ af fólki á litlu svæði en við rákumst á fornbílasýningu sem var reyndar frekar skondin þar sem við erum vön því að bílarnir séu alveg tiptop á Krúsersýningunum að þá var það ekki alveg málið – einn bíllinn var til að mynda með gömlum þurrum fuglaskít á framrúðunni og annar lá á felgunni (algjörlega flatt). En nóg var af Kirsuberjavarningi! Við Sigurborg skelltum okkur í H&M áður en við fórum af stað til þess að ath hvort það væri ekki til eitthvað af kirsuberjafatnaði handa stelpunum en Ingibjörg átti gollu með pallíettuskrauti sem voru jú einmitt kirsuber – það var reyndar svo það eina sem við fundum og okkur fannst fallegt þannig að ég splæsti bara í þannig peysur á Ásu Júlíu og Sigurborgu Ástu 🙂 Stelpurnar því allar í stíl!
Síðasta vikan bauð ekki upp á margt en við náðum þó að gera ýmsilegt eins og að fara niðrá strönd og í bíltúr til Givskud Zoo! já annar dýragarður en þarna má maður keyra um á sínum bíl og kemst í raun mun nær dýrunum en annarstaðar… líka Ljónum!
Strandferðin hitti einmitt á dásemdar sólardag og ekki skemmdi að akkúrat þann dag var Tobbi í fríi! *jeij*
Ákváðum að drífa okkur bara niðrá strönd og slaka á! sem var gert til hins ýtrasta!
Við eyddum öllum deginum hérumbil frá opnun og alveg til lokunar í Giveskud zoo og ég mæli sko hiklaust með því – og að taka nesti! alveg upp á danska mátann alla leið!
Krökkunum fannst hrikalega spennandi að keyra inn í ljónabúrið og sjá ljónin labba hérum bil alveg upp við bílinn. Alveg þess virði að bíða í rúmlega 30 mín röð 🙂
Okkur Leifi langaði samt mest af öllu að komast nær Gíröffunum en þeir eru eitthvað svo tignarlegir þrátt fyrir ógurlega lengd í fótum og hálsi 😉
Oliver var búinn að tala um það áður en við fórum út að hann vildi sko endurtaka berjatýnsluna en við gerðum heiðarlega tilraun til þess.. jarðaberjatíminn liðinn, hindberjatíminn alveg á mörkunum, kirsuberjavertíðinni alveg að ljúka en möguleiki á rifsi, sólberjum, plómum og einhverju skemmtilegu.. en þegar á reyndi fór að rigna .. og rigna… og HELLIRIGNA.
Við enduðum samt á því að taka með okkur heim eins og ca kg af rifsi.
Þetta var dásamleg ferð uppfull af góðum mat, samveru og minningum.
Takk fyrir okkur elsku Sigurborg, Tobbi, Ingibjörg, litla ljós og Kvika <3
Smá brot af myndunum sem ég tók á símann minn má finna hér ef áhugi er á 🙂