Ég átti sítrónusafa inni í frysti frá því að við gerðum maraþon límonaði fyrir afmælið hennar Ásu Júlíu í fyrra, eða fengum Sigurborgu systur Leifs til þess að græja það á meðan við kláruðum afmæliskökuna ofl. Í dag var fullkominn dagur til þess að græja límonaði fyrir liðið 😉 Svalandi og bragðgott.
Á alltaf eftir að setja niður uppskriftina sem hún gaf mér og smella nokkrum myndum af í leiðinni til þess að setja inn á uppskriftasíðuna 🙂
En svo sólgin voru börnin í límonaðið að kannan kláraðist fljótt.