Hjálpuðum mömmu og pabba að græja kartöflugarðinn fyrir sumarið í dag, hefðum viljað græja þetta fyrr en það er ekki alltaf hægt 😉
Tókum vel á og hreinsuðum slatta af óvelkomnu grasi og fíflum í leiðinni sem eru að reyna að yfirtaka meira og meira pláss.
Mamma ætlar svo að pota niður kartöflum og einhverjum fræjum síðar í vikunni.
Stóðst svo ekki mátið að smella mynd af þessum – þetta er bara örlítið brot af rifsberjarunnunum hjá þeim – verður forvitinlegt að sjá hvað kemur út úr þessu í haust 😀