Ég er ekki alveg að trúa því að á morgun séu komin 10 ár frá því að við urðum foreldrar í fyrsta sinn.
Að það sé heill tugur frá því að Oliver mætti á svæðið með stæl.
Svo ótrúlega margt hefur breyst hjá okkur á þessum 10 árum – til að mynda er Olli ekki lengur einn 😉 og systurnar hafa bæst í hópinn, við keyptum okkar fyrstu íbúð og svo raðhús í framhaldi af því, það er líka eitt brúðkaup þarna með 😉
Að vanda þá kom samvinna okkar hjóna við sögu í veislunni í dag og skartaði veisluborðið 1 stk fótboltasundköku fyrir drenginn sem hafði óskað sér köku á mörgum hæðum (sættumst á 2hæðir).