Krakkarnir voru með í fjáröflun hjá ÍR þennan mánuðinn.. WCpappír og eldhúspappír var aðalvaran ásamt páskaeggjum frá Kólus (já og lakkrís og rísegg líka).
Fyllti næstum skottið á Previunni þegar ég sótti varninginn og var fegnust því að losna við þetta í kvöld 😛
Ýmsir staðir í Austurborginni heimsóttir ásamt stoppi í Kópavoginum. Alltaf gaman að hitta fólkið sitt þó það hafi verið í örflugumynd á flestum stöðum.
Takk fyrir stuðninginn!