Það er loksins að koma að því að setja upp stigann heima, styttist óðum í að komin séu 4 ár frá því að við fengum K48 afh. og fluttum inn áður en vikan var liðin.
Leifur var alltaf á því að klára þetta blessaða loft sem fyrst en það er víst hægara sagt en gert þegar hann er staddur í virkjunarframkvæmdum upp á fjöllum eins og hann var hluta fyrsta ársins og svo oftar en ekki í rúmlega 100% vinnu og fullt hús af börnum.
En þetta hefst allt saman á endanum 🙂