Við Sirrý vinkona skelltum okkur í mat á Sæta Svínið og bingó með Siggu Kling í framhaldinu – mikið sem við skemmtum okkur vel!
Vá hvað þetta var gaman 😉
Mæli með því að kíkja ef þú fílar fíflaganginn í Siggu Kling, hún er náttrúlega bara eðal skemmtun út af fyrir sig 🙂
Dró þetta fallega spjald hjá henni í “hálfleik” og ég held að það geti eiginlega ekki verið fallegra en að fá svona ósk 🙂
Ég endaði á að fá BINGÓ og vann gjafabréf á kokteila, máltíð á Dirty Burgers and Ribs og nokkur af spilunum hennar Siggu (fallega orðuð spádómsspil).
Sirrý! við þurfum klárlega að fara aftur!!