er rétt að byrja á að mixa saman aðventukransinum… yfirleitt er hann nú tilbúinn á þessum tíma en það er búið að vera annsi þéttskipuð dagskráin undanfarið hjá fjölskyldunni. Leifur og krakkarnir eru reyndar stödd í jólaboði þegar þetta er skrifað en ég hélt mig heima með hitavellu og leiðindarkvef.
Kransinn mun mjög líklega enda mjög ófrumlegur í ár enda hef ég ekki gefið mér tíma til þess að fara og skoða almennilega hvað er í boði skreytingalega þannig að ég mun bara nýta það sem er í kasssanum.
Ef ég verð í stuði er aldrei að vita hvort ég græji ekki bara á útidyrnar líka eins og í fyrra.