Við fögnuðum 3 ára afmæli Sigurborgar Ástu í dag. Mikið fjör á bænum!
Sigurborg heldur mikið upp á m.a. Hello Kitty og var alsæl með þessa einföldu köku sem við hjónin föndruðum í ár. Reyndar var afmælisbarnið ekki alveg fyllilega sátt við hversu “illa” við festum veiðihárin á hana og ákvað að ýta þeim aðeins betur niður í kökuna sem olli auðvitað holum 😉 en við náðum að redda lookinu að mestu með smá fondanti!