Við æskuvinkonurnar skelltum okkur í sumarbústað yfir helgina. Mikið sem það var notalegt að stinga aðeins af út úr bænum og bara njóta.
Eina planið fyrir ferðina var að við ætluðum að elda okkur góðan brönsh og góðan kvöldmat og slaaaaaaaaka eða ss borða vel 😛
Ég er ekki frá þvi að það hafi barasta tekist, amk held ég að ég hafi aldrei tekið jafn fáar myndir og slakað jafn vel á lengi 😉
potturinn var vel nýttur og við skelltum okkur í góðan göngutúr fyrir kvöldmatinn á laugardeginum.
Alveg hreint dásamlegt og meiri líkur en minni á að að þetta verði endurtekið – fyrr en síðar 😉