ég er búin að vera að fá sendan póst í sumar frá VR & TM með tilkynningum um það að ég geti nú fylgst með hinum ýmsu atriðum í gegnum “mínar síður” eða “mitt öryggi” og ég hef einhvernvegin ekki gefið mér tíma til þess að kíkja á þetta dóterí fyrr en nú…
Ég var að skoða stöðuna á tryggingunum mínum á netinu *woohoo* voða gaman… hvað ætli VR síðurnar hafi að geyma ? hve fáa punkta ég á í kerfinu ? eða hve auðvelt það er að greiða atkvæði innan félagsins ef ég bara logga mig inn ?