sá þetta á forsíðunni á Femin, mörg áhugaverð atriði sem eru ó svo sönn
Hafa skal í huga!
– Lágvaxnar konur ættu ekki að ganga í síðu
– Doppótt er smart í sumar
efast samt einhvernvegin um að ég eigi eftir að fá mér doppótta flík
– Brúnkukrem er málið
– Sparaðu aldrei við þig að eiga sexí nærföt
jeij
– Konur sem eru komnar yfir fertugt ættu ekki að vera of grannar, það bitnar á andlitinu
ó só trú
– Sítrónusafi í hárið og hárið lýsist fallega í sólinni
já en ég viliggi vera ljóska
– Fátt er jafn kjánalegt og kona á besta aldri sem klæðir sig eins og 15 ára
hélt að flestir vissu þetta ?
– Naglalakkaðar tásur eru sætar
verulega sætar
– Heilbrigt og hraustlegt útlit er inni
– Skapaðu þinn eigin stíl, vertu þú sjálf, það sýnir sjálfstæði
alltaf gaman að fara sínar eigin leiðir
– Of víður fatnaður og of þröngur fatnaður gerir þig feitari
það er bara normið
– Við erum allar miklu sætari og skemmtilegri þegar við brosum
það er líka bara staðreynd
– Það er hægt að vera sexí án þess að vera glyðruleg
that is ó só trú
– Keyptu þér flott sólgleraugu fyrir sumarið
finn engin sem ég hef verið fyllilega sátt við
– “Less is more;” ekki ofhlaða skartgripum eða mála þig of mikið, ekki lita hárið of afgerandi eða verða of brún, hvað þá að hvíta tennurnar of mikið
það er náttla hægt að ofgera öllu