Við mæðgurnar skelltum okkur á sýninguna Litaland með Leikhópnum Lottu. Ása var svo spennt fyrir sýningunni og gat varla beðið eftir að fara á hana.
Sigurborg Ásta kom á óvart með hversu róleg hún var mest alla sýninguna og segjir það nú bara gott um sýninguna 😀
Ása Júlía sagði nokkrum sinnum við mig hversu skemmtilegt leikritið væri sem var mjög gaman að heyra, hún var líka alveg með það á hreinu hvaða karakterar voru leikir af sama leikaranum.
Strax og við komum heim var Ása búin að opna geisladiskinn og skella honum í tækið og sofnaði hlustandi á diskinn 🙂