Ég var að átta mig á því að ég er bara að vinna í dag og svona hálfpartin að vinna á morgun og svo er ég komin í frí :o)
*jeij* get fengið að sofa lengur en til 7:30 *jeij*
ástæðan fyrir hálfpartin deginum á morgun er sú að hann Ísak ætlar að koma og vera hérna á morgun með mig svona í bakhöndinni… annars á hann að sjá um den hele thing :o)
svo á miðvikudaginn ætlum við nokkrar 4 gellur og 2 herrar (amk) að halda upp í Grímsnes í sumarbústað… óhve ljúft :o)
njóta þess að vera til og gera ekki baun í balaaaaaaaaa :o)
í dag eru svo akkúrat 14 dagar í að ég fari til Spánar með Iðunni minni *tilhlökkunstigmagnast* það verður bara fjör…
Ég er líka orðin 99,98% örugg á því að ég ætla ekki að halda partý eða neitt þessháttar tengt afmælinu mínu þann 10 ág… frekar ætla ég að veita mér það sem mig langar að gera á Spáni. Fer kannski bara út að borða eða e-ð fyrir Pink tónleikana… svo skilst mér að Leifsfamilía sé að fara í matarboð þann 11 og svo á Sirrý skvísa afmæli þann 13… nóg að gerast!