Ég er ekkert ósátt við að byrja vinnudaginnn svona… og þó það væri betra að vera bara í fríi 😉
Það er alveg óhætt að segja að þetta hafi verið fyrsti alvöru sumardagurinn í dag, allir hálf berir og að striplast um borgina 😉
Oliver skellti sér á fótboltaæfingu í stuttbuxum og var að “kafna úr þorsta” við heimkomuna eftir klst fótboltaæfingu og að hafa hjólað upp dalinn eftir hana.
Þegar ég kom heim eftir vinnu var ég að sjálfsögðu tilbúin til að hoppa út á pall til þess að sjá hvað hitamælirinn gaf í skyn og viti menn í skugga voru stigin 21.
Þetta þýðir auðvitað líka að nú er Birkið að taka almennilega við sér og við mæðginin fáum að kenna á því.