Merkilegt nokk… Sirrý komst á leiðarenda með fullfermi af öllu mögulegu hahahaha 🙂
annars þá er ekkert að gerast hjá mér í dag… eða JÚ!!!
Ég fór í hádeginu í Jón & Óskar til að láta setja nýtt batterí í úrið mitt… allt í lagi með það svosem sko… nema að daman sem var þarna að afgreiða hún hefði kannski betur farið í síða peysu í dag. málið er að daman var að þrífa glerskápana með öllu postulíns dótinu og sat á frekar lágum kolli… já þegar ég snéri mér við þá bara blasti við HVÍTUR G-STRENGUR í öllu sínu veldi! hún hefði annaðhvort átt að vera í síðri peysu í dag eða þá ekki svona lágum buxum eða bara einfaldlega fara öðruvísi að!
hehe en NOTE TO ONESELF ekki vera í low cut buxum & stuttum bol/peysu þegar þú veist að þú þarft að vera að bogra eitthvað svona í vinnunni, það er ekkert smekklegt að vera í þjónustustarfi og sýna allt svona 🙂