Við kláruðum dansveturinn með stæl á danssýningu í dag. Ása Júlía bauð ömmum sínum, öfum, Sigurborgu frænku & Ingibjörgu með á sýninguna og voru þær frænkur alveg heillaðar.
Svo skemmtilega vill reyndar til að nágranni tengdó er einn af flottustu dönsurum skólans og sýndi hann þarna nokkra velvalda dansa með dansdömunni sinni og urðu þær frænkur svo hrifnar að þær tóku sig til og tóku nokkur Tangó skref í takt við Gunnar og dömuna hans 😉