Þessi gaur er búinn að hangsa á stallinum við fánastöngina á sameiginlega blettinum okkar undanfarna daga. Bíður þarna samviskusamlega eftir eiganda sínum sem þrátt fyrir að hafa verið auglýst eftir honum á nokkrum stöðum í nokkra daga.
Category: PAD
135/365
AMÍ mútur… ef þú nærð lágmarki um helgina sonur sæll… #keppnissundgleraugu
134/365
Dúlluteppið hennar Ásu Júlíu er enn í vinnslu – og verður það eflaust í svolítinn tíma til viðbótar… finnst fínt að grípa í að hekla nokkar litlar dúllur þegar ég er með stór verkefni í gangi. Ég er samt bara núna fyrst að byrja að ganga úr skugga um að allir endar séu vel faldir…
133/365
Eurovisionkvöld – Krakkarnir í skýjunum með strákana í Hatara og að þeir hafi komist upp úr undanúrslitunum.
132/365
Suma daga er þetta tilfinningin sem vofir yfir manni… að batteríið sé alveg að verða búið… þrátt fyrir að vikan sé rétt að byrja. Síðan við komum heim er einhvernvegin búið að vera nóg að gera hjá okkur og lítill tími aflögu til þess að bara slaka. Ég var svo fegin því að hafa náð…
131/365
skóli barnanna minna … heimastofa sonarins var í þessu rými. Mér þykir þetta frekar óhuggnarlegt allt saman, að vita ekkert hvað gerðist eða hvernig komandi vikur verða en það er augljóst að þessar skólastofur verða ekki nýttar á næstunni 🙁
130/365
Dúlluteppið hennar Ásu mjakast hægt og rólega áfram… er að byrja að strekkja nokkra ferninga og náði að stækka þá úr 8×8 í 10×10 cm! Á svo alltaf eftir að velja mér aðallit til þess að hekla það saman…
129/365
Ég EEEEEEEEEEEEELska að eiga birgðir í frystinum af allskonar hráefni… Leifur keypti t.d. blokk af Þorski nýlega af einni sem er að vinna með honum og úr einni slíkri næ ég ca 12 máltíðum fyrir okkur fjölskylduna. Við kaupum líka öðru hvoru hluta úr Nauti og eigum því alltaf hakk/gúllasi/snitseli í frysti. Elskidda!