Kallarnir hans pabba á vorsýningu FÁT eða Félags áhugamanna um tréskurð 🙂 Ég og krakkarnir kíktum á vorsýninguna hjá þeim sem haldin var í Nethylnum hjá Heimilisiðnaðarfélaginu. Flott sýning og margt skemmtilegt að sjá!
Category: fjölskyldan
#eibie40
Arnbjörg fagnaði 40 árum í kvöld með svaklegu partýi í miðbæ Reykjavíkur, nánartiltekið á svipuðum slóðum og við vorum að “djamma” á menntaskólaárunum, í “Iðuhúsinu” í sal sem nefndur hefur verið “Tunglið”. Tunglið sáluga var náttrúlega aðalstaðurinn hér áður 🙂 Dætur hennar og Víkings áttu gjörsamlega kvöldið og skemmtu okkur hinum með dásamlegum skemmtiatriðum eins…
Páskabingó
Ég fór með krakkana í Páskabingó á vegum SFR/Sameyki í dag. Þau voru oft búin að spurja mig síðustu vikur hvort það yrði ekki aftur í ár og hvort við myndum ekki fara þannig að annað var eiginlega ekki hægt 🙂 Ása Júlía og Oliver voru alveg á því að við skyldum sko EKKI sitja…
101/365
Ekkert lítið sáttur drengur að spila tölvuleik með pabba og félögum.
99/365
Þessi tími… Oliver stefnir á 2 stórmót í sumar og það krefst ágæts kostnaðar… Fótboltinn á Akureyri í júlí og svo ef honum gengur vel á sundmótum maímánaðar er stórt sundmót AMÍ í júní í Reykjanesbæ.
98/365
Barnamenningarhátíð var sett í dag Í ár er Sigurborg Ásta í barnakórnum. Alveg dásamlegt að mæta í Hörpuna og hlusta á þennan risa barnakór sem sameinast í þessu fallega verki. Hér má sjá þau synja lagið “Eitt barn enn” P
96/365
Ekki leiðinleg byrjun á deginum. Oliver átti leik í fallegu veðri í Reykjavíkurmótinu í dag á móti KRingum.
95/365
Við skelltum okkur í páskaeggjaleit í dag með félögum Leifs í Sjálfstæðisflokknum – krakkarnir voru ekki lengi að finna nokkur egg og skipta þeim út fyrir gómsæt súkkulaðiegg. Ása skellti sér líka í húllakeppni og kom foreldrunum á óvart með lagni sinni þar 🙂