mikið svakalega leiðist mér í vinnunni þegar sólin skín glatt úti og ég er föst inni og það er EKKERT að gera…
Author: Dagný Ásta
frændi er fæddur!!!
kl 9:40 að staðartíma ( San Antonio, Texas, ca 5 klst á eftir okkur ) fæddist Logan Elliott hann var 7pund & 7 únsur ( STARFRÆÐISÉNÍ vantar upplýsingar um hvernig á að reikna þetta takk *huldabjörg*) og 19,5 inch – eða 49,5 cm fæ myndir fyrr en síðar
jæja… enn ein fermingarveislan yfirstaðin…
í dag var það Davíð Rúnar … mér brá dáldið að koma þarna inn… þannig er að Davíð Rúnar er barnabarn systur pabba og hún tók upp á því fyrir um 15 árum að einangra sig frá amk pabba ef ekki öllum systkinunum nema Ástu frænku… og pabbi ákvað bara að leyfa henni að ráða…
*jeij*
ég var að fá fréttir af Shavawn frænku… jebb þessari sem er alveg að springa.. Allavegana hann Logan Elliott Beitthvaðsemégkannekkiaðstafa kemur til með að eiga afmælisdaginn 22 apríl 🙂 Shavawn verður víst “sett af stað” á morgun 🙂 ég vona að frænku eigi eftir að ganga vel… hún erfði vonandi ekki grindina hennar mömmu sinnar……
:o)
~*~*~*~*~*~*~GlEðIlEgA pÁsKa~*~*~*~*~*~*~
úff
Fékk hringingu rúmlega 12 í dag… Sirrý að heimta að mar kæmi með henni í kringluna… alright.. Kringlan var mæld… svo hringdi Liljan og vildi endilega að við drifum okkur til hennar í Smáralindina … þannig að smáralindin var mæld líka… reyndar mældum við líka Pizza Hut og 3 bekki hjá Smart og svo sal…
Föstudagurinn Langi
þessi dagur er búinn að vera alveg einstaklega lengi að líða & rólegur… búin að glápa á kassann… surfa pínu á netinu.. skoða myndirnar mínar og þannig… maður er eiginlega barasta að bíða eftir því að fá hringinguna frá ammeríkunni … frétta hvenær hann Logan Elliott hafi mætt í heiminn… Ég er svo ekki að…
úff…
mamma minntist á það í dag að ég ætti “afmæli” í dag… ég kom nú algerlega af fjöllum fyrst en áttaði mig svo á því hvað hún átti við… í dag var semsagt 18 apríl… og heil 10 ár síðan ég fermdist… mér finnst ekki vera svona langt síðan ég fékk græjurnar mínar… Mér finnast…