skrapp inn í Heklu áðan með mömmu og pabba að skoða nýjustu útgáfuna af Outlander (sama týpa og þeirra bíll) nema hvað að upp að mér kemur lítil stelpa, svona ca 6-7 ára og spyr mig alveg á innsoginu “ertu með barn í maganum?” Ekkert smá mikil dúlla 🙂
Author: Dagný Ásta
léleg
ég er búin að vera ferlega léleg við að sinna því sem skiptir mig máli undanfarið.. lítið sem ekkert saumað (nema eitt lítið fermingarkort til frænda míns), ekkert fiktað í skrappinu, ekkert lesið af ráði nema læknabréf *woohoo*, það eina sem ég virðist hafa gert nóg af er að sofa en samt ekki því að…
Get varla beðið
mér finnst klukkan líða eitthvað svo hægt… liggur við að ég kíki á hana á 2 mín fresti til þess að ath hvort hún sé ekki að verða 10! Ég ætla nefnilega að stinga af úr vinnunni í smá tíma og fara í smá dekur, hlakka ekkert smá mikið til!!! láta dekra við mig í…
heyrðu?
stendur þú fyrir þessari snjókomu ?
Föstudagurinn Langi
Á föstudaginn ákváðum ég, Leifur, Ása og Sirrý að hittast og rifja upp minningarnar frá því á páskunum í fyrra þegar þær skvísur komu og heimsóttu okkur til Holte 🙂 Brilliant kvöldstund þar sem ýmsir punktar síðustu páska voru rifjaðir upp, m.a. Tópasinn! ég held að við 4 höfum verið annsi vel rauðvíns/súkkulaði legin eftir þessa…
Gleðilega Páska
skrítið
það er frekar skrítið að koma inn á gamlan vinnustað og sjá hversu mikið hann hefur breyst… og það ekkert endilega til hins betra…
Apríl
Tíminn líður ekkert smá hratt… og ég sem var búin að undirbúa mig fyrir það að hann myndi nú líða frekar hægt þessa dagana… enda er það nokkuð sem maður er búin að fá að heyra nokkuð reglulega.