Mig hefur oft langað að útbúa krans á útidyrahurðina og í ár lét ég verða af því eftir að hafa vafið aðventukransinn.
Þetta er í raun bara afgangurinn af efniviðnum úr aðventukransinum og nokkrar skrautgreinar þar að auki.
Ég setti 1 stjörnu fyrir hvert okkar og 2 litlar greinar til þess að fá smá auka lit í kransinn.
Er mjög sátt við útkomuna og hver veit… kannski verður þetta bara málið í framtíðinni 😉